Umhverfisstefna

Það er stefna Suðurverks að vinna í sátt við umhverfið og með sjónarmið umhverfisverndar að leiðarljósi.


Umgengni við umhverfið skal ávallt vera með þeim hætti að ekki hljótist mengun af eða annar skaði og tryggja stöðugar úrbætur í umhverfisstjórnun.


Fyrirtækið skal ávallt uppfylla kröfur stjórnvalda í umhverfismálum samhliða því að vinna ötullega að stöðugum úrbótum í þessum málaflokkum.